Quantcast
Channel: Rokkland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 1298

Bubbi talar og talar...

$
0
0
Í Rokklandi á sunnudaginn. Hann talar fyrst og fremst um nýju plötuna - 18. konur sem fjallar meira og minna öll um konur. Það eru líka konur sem spila með honum á plötunni - eingöngu konur. Þær kalla sig Spaðadrottningarnar og eru Ingibjörg Elsa Turchi sem spilar á bassa, Brynhildur Oddsdóttir á gítar, Sólrún Mjöll Kjartansdóttir á trommur og Margrét Arnardóttir á harmonikku. Við Bubbi ræðum í þættinum um konur, plötuna, Spaðadrottningarnar, trúmál, höfundarétt, netið, Spotify, Úlfur Úlfur, nauðganir, Múhameð og Guð, um rafmagnsgítara, réttarkerfið, hefndarklám, Drekkyngarhyl og drauma, um Joy Divison, ríka fólkið, ljóðabækur, Múslima og flóttafólk, útgefendur og ýmislegt fleira. Bubbi Morthens kom inn íslenskt tónlistarlíf eins og stormsveipur árið 1980 ? þetta er gömul klisja að orða hlutina svona en hún er svo innilega sönn í tilfelli Bubba. Síðan þá hefur hann ekki látið okkur í friði ? hann er búinn að gera fleiri lög og plötur en allir aðrir íslendingar. 8 konur er 28. sólóplatan hans og þá eru plöturnar með hljómsveitunum hans ekki teknar með ? Utangarðsmanna-plöturnar, Egó-plöturnar, Das Kapital, GCD-plöturnar og ekki tónleikaplöturnar eða safnplöturnar. Bubbi hefur skrifað bækur ? barnabækur og veiðibækur, og núna síðast ljóðabók sem hefur slegið í gegn. Hann bloggar, hann stýrir útvarpsþáttum og sjónvarpsþáttum - hann er yfir og allt um kring og allt of fyrirferðarmikill finnst mörgum - en sumir fá aldrei nóg af þessum Bubba.

Viewing all articles
Browse latest Browse all 1298

Trending Articles


Vimeo 10.7.1 by Vimeo.com, Inc.


UPDATE SC IDOL: TWO BECOME ONE


KASAMBAHAY BILL IN THE HOUSE


Girasoles para colorear


Presence Quotes – Positive Quotes


EASY COME, EASY GO


Love with Heart Breaking Quotes


Re:Mutton Pies (lleechef)


Ka longiing longsem kaba skhem bad kaba khlain ka pynlong kein ia ka...


Vimeo 10.7.0 by Vimeo.com, Inc.


FORECLOSURE OF REAL ESTATE MORTGAGE


FORTUITOUS EVENT


Pokemon para colorear


Sapos para colorear


Smile Quotes


Letting Go Quotes


Love Song lyrics that marks your Heart


RE: Mutton Pies (frankie241)


Hato lada ym dei namar ka jingpyrshah jong U JJM Nichols Roy (Bah Joy) ngin...


Long Distance Relationship Tagalog Love Quotes