Rokkland fjallar um Tómas M. Tómasson Stuðmann sem lést í vikunni í seinni hluta þáttarins en í þeim fyrri skoðum við aðeins Grammy verlaunin sem verða afhent í New York í kvöld og spjöllum við Sindra Ástmarsson hjá Mid Atlantic Entertainment. Rokkland var í vikunni sem leið á Eurosonic Festival í Groningen í Hollandi og þar var Sindra Ástmarsson framkvæmdastjóri umboðsskrifstofunnar Mid Atlantic Entertainmnent sem er t.d. með Glowie, Kaleo, Úlfur Úlfur og Emmsjé Gauta á sínum snærum. Sindri var á Eurosonic fjórða árið í röð að fylgja sínu fólki. Rokkland ræddi við hann í dönsku samkvæmi sem haldið var vegna þess að Danmörk og dönsk tónlist var í fókus á Eurosonic. En Eurosonic er svo stærsta tónlistarhátíð Evrópu sem gengur út á að kynna nýja tónlist fyrir nýjum eyrum. Svo verða Grammy verðlaunin afhent í nótt og það verður sýnt beint frá því á RÚV. Verðlaunin verða afhent í New York og við skoðum það aðeins í þættinum, skoðum t.d. hvaða lög eru tilnefnd í flokkunum Best Alternative Music Album og Best Americana Roots performance. En svo var það Tommi Tomm, Stuðmaðurinn og Þursaflokksmaðurinn Tómas M. Tómasson sem lést í vikunni eftir snarpa baráttu við krabbamein. Við höfum tekið ofan fyrir Tómasi í vikunni hérna á Rás 2 og Rokkland ærlar að minnast hans aðeins í dag og svo betur síðar.
↧