Gestur Rokklands í dag er Popppstjarnan Palli, Páll Óskar Hjálmtýsson sem er búinn að vera Poppstjarna með stóru P-i í 30 ár. Hann sló í gegn 19 ára þegar hann tók þátt í söngkeppni framhaldsskólanna og er í raun búinn að vera stjarna síðan. En það hefur ekki alltaf verið auðvelt að vera Páll Óskar, líf hans hefur gengið upp og niður eins og hjá flestum og hann segir okkur frá því í þættinum, en hann segir okkur líka frá ýmsu öðru sem á daga sína hefur drifið auk þess sem við tölum um lögin hans og heyrum nokkur í þættinum auðvitað. En tilefni heimsóknarinnar í Rokkland er að Palli er að vera fimmtugur og ætlar að fagna afmælinu með stórtónleikum í Háskólabíói um miðjan mars, þrisvar sinnum. Þar ætlar hann að fara yfir ferilinn með 17 manna hljómsveit Rigg viðburða og á lagalistanum er eitt og annað sem Palli syngur ekki venjulega þegar hann treður upp. Palli segir ýmsar sögur í Rokklandi vikunnar.
↧