Hjómsveitin Síðan Skein Sól leikur við hvurn sinn fingur í Rokklandi vikunnar.
Það var í Hlaðvarpanum í kvosinni í þykkri snjókomu, þar sem Tapasbarinn er núna til húsa, þann 25 mars 1987 að Hljómsveitin Síðan Skein Sól hélt sína fyrstu tónleika. Síðan eru liðin mörg ár - 30 ár næsta lagardag.
Af því tilefni bauð Rokkland hljómsveitinni í heimsókn í stúdíó 12 í útvarpshúsinu við Efstaleiti í vikunni. Helgi Bjösss og félagar voru blessunarlega til í það - mættu með kassagítara og græjur, spiluðu, sungu og sögðu sögur.
Síðan Skein Sól, síðar SSSÓL og stundum einfaldlega "Sólin" er ein af vinsælustu hljómsveitum íslenskrar poppsögu. Það má segja að Sólin sé einskonar "súpergrúppa" eins og þær voru kallaðar seventís - vegna þess að meðlimir hljómsveitarinnar höfðu áður spilað m.a. með Tappa Tíkarrassi, Grafík, Das Kapital, Mx 21, Rauðum Flötum og Wonderfools.
Sveitin er að fagna þessum tímamótum um þessar mundir með tónleikahaldi, var fyrir norðan um daginn á Siglufirði og Akur...
↧