Björn Steinbekk heitir aðal skipuleggjandi Sónar Reykjavík og lofar frábærri hátíð, en Sónar tónlistarhátíðin verður haldin í fyrsta sinn í Reykjavík helgina 15. og 16. febrúar í Hörpu.
Björn segir hvernig Sónar hátíðin fæddist í Barcelona fyrir bráðum 20 árum og hvernig það gerðist að það var ákveðið að koma upp útibúi í Reykjavík í febrúar 2013.
Hann kallar líka eftir pólitískum stuðningi við frumkvöðla sem allir stjrónmálamenn lofa í hástert á hátíðastundum en síðan ekki söguna meir,
Á Sónar Reykjavík koma fram listamenn eins og quarepusher, Ásgeir Trausti, Modeselektor, Mugison, James Blake, Gus Gus, Ryuichi Sakamoto og margir fleiri! Allir mjög töff!
Í þættinum í dag (27.01.2013) koma líka við sögu U2, Beady Eye, vinilplatan, hljómplatan sem app, The Redwood Plan frá Seattle, Björk, Jac Holzeman og Elektra útgáfan, The Beatles og allskonar!
↧
Sónar Islandus!
↧
Adele og John Grant
Í Rokklandi í dag (03.02) morgun skoðar Óli Palli hvaða plötur seldust mest og best í Ameríku á síðasta ári, en það er athyglisverður listi.
Breska söngkonan Adele á plötuna sem seldist í flestum eintökum í fyrra, en hún seldist líka mest allra platna árið 2011. Og það er einstakt.
Bandaríski tónlistarmaðurinn eitursnjalli, John Grant er búinn að dvelja hér á Íslandi meira og minna síðan hann kom og spilaði á Iceland Airwaves haustið 2011. Hann er búinn að taka upp plötu með Bigga "veiru" úr Gus Gus sem kemur út í mars á vegum Senu á Íslandi. Grant verður með útgáfutónleika í Hörpu 16. mars og fer svo í tónleikaqferð um heiminn með hljómsveit sem er að mestu leyti skipuð íslendingum. Óli Palli ræðir við John um ást hans á Íslandi, um íslenska tungu, um nýju plötuna, íslenska tónlist ofl.
Einnig heyrast upptökur úr safni Rásar 2 með John Grant frá Airwaves 2011, og líka upptökur frá bandarísku útvarpsstöðinni KEXP með John, sem gerðar voru á KEX-hostel í sömu heimsókn. Þar að auki 2 lög af nýju plötunni væntanlegu.
↧
↧
Lög eru eins og hús sem maður gengur inn í
Segir Egill Ólafsson meðal annars í Rokklandi dagsins (10.02.2012)Hann segist alltaf hafa séð lög fyrir sér eins og byggingar sem maður geti gengið inn um dyrnar á, gengið um og horft út um gluggana. Lög hafi strúktúr og herbergjaskipan, en ekkert gólf og ekkert þak.
Egill varð sextugur í gær (09.02.2013) og af því tilefni efnir Rás 2 til Ólafs Egils-vöku alla helgina og liður í þeim hátíðahöldum er Rokkland þar sem Egill er heiðursgestur á morgun.
Egill segir í Rokklandinu frá æsku sinni og skólagöngu á Núpi og í MH. Frá fyrstu árunum í bransanum, frá Júlíusi Agnarssyni vini sínum og hljómsveitinni Andrew, Spilverki Þjóðanna og fyrstu Stuðmannaplötunni; Sumri á Sýrlandi.
Hann talar líka um að það hafi verið hálf ómögulegt að syngja með grímu á höfðinu eins og hann þurfti að gera á nokkrum fyrstu tónleikum Stuðmanna fyrir öllum þessum árum.
↧
Má ekki bjóða ykkur örlítið flugnaeitur?
Egill Ólafsson heldur áfram að rekja feril sinn í Rokklandi í dag (17.02.2013) þaðan sem frá var horfið fyrir viku.
Hann segir frá Spilverkinu og plötunum fjórum, Spilverki Þjóðanna, Nærlífi, Götuskóm og Sturlu. Hann talar um Ísland sem var, hvernig Hinn Íslenski Þursaflokkur varð til. Hann segir frá samstarfinu við Megas þegar hann og Spilverkið gerðu plötuna Á bleikum náttkjólum 1977. Af Jagermeister-morgun-drykkju söngvaskáldsins og þegar hann bauð hljómsveitinni upp á örlítið flugnaeitur til hressingar.
Egill segir frá Evrópudvöl Þursanna 1979 og ævintýrum vítt og breitt. Af Stuðmönnum og öðrum karakterum.??
↧
Söngvaskáld syngja til kvenna!
tilefni konudags verða leiknar nokkrar af helstu perlum rokksögunnar þar sem sungið er af mikilli ást og einlægni til kvenna.
En John Grant kemur líka við sögu, segir sögurnar á bakvið 2 lög af nýju plötunni sinni Pale Green Ghosts sem kemur út 16. mars. Hann talar líka um Nick Cave og lagasmíðar.
Egill Ólafsson klárar svo að segja frá sjálfum sér og vinum sínum og árunum frá 1979 til 1982 í lífi sínu. Af Þursum, Stuðmönnum, Gretti og fleiri hetjum.
↧
↧
Slagsmálaskítur og kjarnorka fyrir friði!
Ólafur Arnalds var í eina tíð í hljómsveitunum Fighting Shit, Mannamúll og Celestine td. Þar trommaði hann en í dag er hann að geta sér gott orð sem kvikmyndatónskáld og nútíma poppstjarna.
Ólafur er ekki nema 26 ára gamall en búinn að koma ár sinni vel fyrir borð í tónlistarheiminum. Tónlistin hans hefur verið notuð í stórar Hollywood kvikmyndir og vinsæla sjónvarpsþætti, hann er með útgáfusamning við Universal og hann þykir fremstur meðal jafningja á Íslandi í nýmiðlun tónlistar. Ólafur sem sendi nýverið frá sér sína aðgengilegustu plötu, For now i am winter, er aðalagestur Rokklands á morgun (10.03.2013). Hann segir í þættinum frá nýju plötunni og fortíðinni í metal-rokkinu.
Atoms For Peace heitir hún "súpergúppan" sem Thom Yorke forirngi Radiohead leiðir. Hann setti hjómsveitina saman í þeim tilgangi að fylgja eftir sólóplötunni sinni, The Eraser fyrir nokkrum árum. Í lok tónleikaferðarinnar fór hann með hljómsveitinni í hljóðver í Los Angeles og tók upp í þrjá daga. Síðan þá hafa þeir verið að klippa og líma hann og upptökustjórinn Nigel Goodrich sem líka er í hljómsveitinni og fyrir skemmstu kom út platan AMOK. Um plötuna og hljómsveitina verður fjallað í Rokklandi, en í bandinu eru t.d. þeir Flea bassaleikari úr Red Hot Chili Peppers og trommarinn Joey Waronker (R.E.M. og Beck).
Þar að auki koma við sögu í þættinum listamenn og hljómsveitir eins og The Byrds, The Coral, Ride, Woods, Velvet Crush, Nada Surf, Son Volt og Mad Season.
↧
Svartir menn notaðir eins og nautgripir
Já þannig var veruleiki margra helstu blússkálda Bandaríkjanna hér áður fyrr segir Pétur Tyrfingsson blúsmaður í Rokklandi á morgun (17.03.2013).
Pétur hefur staðið í framvarðasveit íslenska blússins í meira en 20 ár. Hann var með blúsþætti á Rás 2 í eina tíð og hefur leitt Tregasveitina árum saman, en hún hefur verið starfandi með hléum frá því á níunda áratugnum. Pétur segir í þættinum frá erlendu gestunum sem heimsækja blúshátíð í Reykjavík núna í dymbilvikunnu, en þá verður hátíðin haldin í 10. sinn.
Þessir erlendur gestir eru ???hjónin Lucky og Tamara Peterson og hinsvegar Guitar Shorty.
Lucky Peterson hefur blúsinn í blóðinu og sönginn í hjartanu og gaf út sína fyrstu plötu aðeins fimm ára gamall og hefur síðan ekki slegið slöku við. Tamara er blússöngkona eins og þær gerast bestar! Þau koma fram með Blue Ice Bandinu eins og Guitar Shorty gerir líka.
Guitar Shorty er lifandi goðsögn. Hann er fyrrum gítarleikari Willie Dixon, Sam Cooke og Ray Charles. Guitar Shorty er margverðlaunaður og hefur spilað með mörgum af helstu stórstjörnum blústónlistarinnar frá upphafi, þ.á.m. mági sínum Jimi Hendrix, Muddy Waters, Koko Taylor, Johnny Winter, Albert King, Junior Wells og James Cotton.
Rokkland skellti sér á blaðamannafund Rokkhátíðar alþýðunnar á Ísafirði síðasta mánudag og ræddi m.a. við borgarstjórann á Ísafirði, skíðakappann Daníel Jakobsson?, frú Aldrei fór ég suður, Rúnu Esradóttur og rokkstjórann og smalann Jón Þór Þorleifsson ofl. Í þættinum heyrast líka upptökur frá Aldrei fór ég suður 2011 og 2012.
↧
Bowie í Músíktilraunum!
Já David Bowie hefur svo sannarlega verið duglegur í músíktilraunum í gegnum tíðina og núna nýlega sendi hann frá sér sína fyrstu plötu í áratug.
Platan sem heitir The Next Day kom eins og þruma úr heiðskíru lofti vegna þess að fólk var almennt búið að afskrifa það að David Bowie ætti nokkurn tíma eftir að gefa út plötu aftur. Það eru 10 ár frá því síðasta plata hans kom út. Hún heitir Reality og í tónleikaferðinni sem hann fór til að kynna hana fékk hann hjartaáfall og hefur haldið sér næstum algjörega til hlés síðan.
Bowie til aðstoðar á nýju plötunni er hans gamli félagi og upptökustjóri Tony Visconti sem hefur unnið náið með honum í meira en 40 ár. Hann og aðrir sem komu að gerð plötunnar þurftu að halda þessu leyndarmáli algjörlega út af fyrir sig sem þýddi það t.d. að Tony þurfti að ljúga að vinum sínum í heil tvö ár, en Bowie lagði mikla áherslu á að enginn fengi að vita að hann væri að gera plötu. Viðtökurnar hafa verið ótrúlegar. PLatan fór beinustu leið í fyrsta sæti vinsældalista um allan heim. Engin plata frá Bowie hefur náð toppsæti breska listans í 20 ár þar til núna og nýja platan er eina plata Bowie sem hefur náð 2. sæti Bandaríska listans. Óli Palli fjallar um nýju plötuna og skautar yfir hvað hann hefur verið að gera síðasta áratuginn.
Úrslit Músíktilrauna fór fram í gær í Silfurbergi Hörpu og hljómsveitirnar sem komust á verðlaunapall verða kynntar í Rokklandinu og sagt frá Músíktilraunum og músík frá úrlsitakvöldinu spiluð, Hljómsveitin Vök frá Hafnarfirði og Akranesi sigraði.
↧
Bestu páskalögin 2013
Í fyrri hluta Rokklands á páskadag er fókusinn á nýja músík sem á hugsanlega aldrei eftir að heyrast aftur.
Þeir sem flytja eru söngvaskáld á borð við Steve Earle, Billy Bragg, Ron Sexsmith og Ed Harcourt t.d.
En í seinni hluta þáttarins er það Bubbi Morthens sem ræður ríkjum. Við heyrum brot af tónleikum hans frá Aldrei fór ég suður 2013 (frá föstudegi) og svo verður frumflutt með honum splunkunýtt lag sem heitir Stormurinn, er hátt í 10 mínútur að lengd og fjallar um Geirfinnsmálið.
↧
↧
Suede og aftur Suede
Þegar breska hljómsveitin Suede kom fram á sjónarsviðið fyrir rétt rúmum 20 árum var hrópað húrra, talað um nýtt upphaf í breskri tónlist og hugtakið Brit Pop varð til.
Logi Suede brann skært og frekar hratt og fyrir áratug var allur eldur úr sveitinni. Síðan þá hefur söngvarinn Brett Anderson sent frá sér sólóplötur, hann tók upp þráðinn með upphaflega gítarleikara Suede, Bernard Butler og gerði plötu undur nafninu The Tears. Nú er Suede komin aftur í þeirri mynd sem hún var þegar hún var á toppnum á tilverunni. Ný plata, Bloodsports, fyrsta plata Suede í áratug leit dagsins ljós fyrir skemmstu og Óli Palli ætlar í Rokklandi á sunnudaginn að rekja sögu Suede frá upphafi til dagsins í dag. Í þættinum heyrast viðtalsbrot við meðlimi Suede úr eldri Rokklandsþáttum, allt frá árinu 1996 og upptökur frá tónleikum Suede á Airwaves í Laugardalshöll árið 2000.
↧
Ungar konur og eldri menn
Ólöf Arnalds, Emeli Sandé, Deep Purple og Ian Hunter komu við sögu í Rokklandi sunnudaginn 14. apríl.
Ólöf Arnalds er nýbúin að senda frá sér sína þriðju plötu. Hún heitir Sudden Elevation og þar syngur Ólöf í fyrsta einn eingöngu á ensku, sem er henni ekki algjörlega framandi þar sem móðurfjölskyldan hennar er ensk. Hún segir frá þessari persónulegu plötu í þættinum.
Emeli Sandé er 26 ára gömul söngkona, fædd í Sunderland en ólst að mestu upp í Skotlandi. Móðirin er ensk en pabbinn frá Sambíu. Hún lærði læknisrfræði en hætti á fjórða ári og ákvað að beita öllumm kröftum sínum í tónlistina. Hún hefur algjörlega slegið í gegn í Bretlandi og kom meðal annars fram á opnunarhátíð Ólympíuleikanna í sumar.
Gömlu rokkhundarnir, rokk-frumkvöðlarnir í Deep Purple eru enn að á sjötugsaldri og núna síðar í mánuðinum kemur út ný plata með sveitinni. Hún heitir Now What? og er 19. hljóðversplatan þeirra. Deep Purple er á leiðinni til Íslands í sumar eins og margir vita, spilar í Laugardalshöll 12. júlí nk. Í þættinum heyrast 2 lög af þessari væntanlegu plötu sveitarinnar.
Ian Hunter var söngavri ensku rokkhljómsveitarinnar Mott The Hoople árin í kringum 1970. Þekktasta lag hljómsveitarinnar er All The Young Dudes eftir David Bowie sem hann samdi sérstaklega fyrir hljómsveitina vegna þess að hann vildi ekki að hún legði upp laupana árið 1972. Lagið er enn spilað reglulega í útvarpi um allan heim og Ian Hunter sem er orðinn 73 ára gamall er en að gera plötur og meira að segja fínar plötur. Óli Palli skautaði yfir feril Hunters í þættinum og spilaði nokkur tóndæmi.
↧
Vottar Jehóva og sexy M.F.
Tónlistarmaðurinn Prince skírðist til votta Jehóva fyrir rúmum áratug og hefur í kjölfarið breytt sumum textum sínum og öðrum sleppir hann alveg að syngja.
Um þetta verður fjallað lítillega í Rokklandi á morgun (20.04.2013).
Skoska söngkonan Emeli Sandé hefur slegið í gegn. Fyrsta platan hennar fór beina leið á topp vinsældalistans í Bretlandi þegar hún kom út í fyrra. Hún hlaut tvenn helstu verðlaunin þegar breksu tónlistarverðlaunin voru afhent síðast; "tónlistarkona ársins" og "plata ársins". Hún söng líka við bæði opnunar og lokahátíð Ólympíuleikanna í London í fyrra. Hún kemur við sögu í Rokklandi.
Upptökustjórinn Andy Johns sem tók m.a. upp allar helstu plötur Led Zeppelin og nokkrar með Rolling Stones lést á dögunum og hans verður minnst í þættinum.
Jeff Lynne er sérlundaður furðufugl. Eða hvað? Óli Palli fjallar um hann og spilar lög af sólóplötunni hans sem kom út síðasta haust. Platan heitir Longwave og inniheldur gamlar dægurlagaperlur sem Lynne heyrði í langbylgjuútvarpinu sínu þegar hann var að alast upp í Birmingham árin eftir seinni heimsstyrjöldina.
↧
Íslendingar setja X við Rokkland
Rokkland verður fjölbreytt og á sínum stað í dag (28.04.2013) þegar íslendingar hafa kosið sér nýja fulltrúa á Alþingi.
Hún er nýorðin 27 ára, tónlistarskólagengin glæsileg tónlistarkona frá Birmingham. Hún er ein af þremur sem hlaut í ár tilnefningu til Critics choice verðlauna bresku tónlistarverðlaunanna. Hún lenti í fjórða sæti sæti í BBC Sound 2013 og sendi nýverið frá sér fyrstu plötuna sína. Hún heitir Laura Mvula og er til umfjöllunar í Rokklandi á sunnudaginn (28.04.2013).
Bandaríski tónlistarmaðurinn Richie Havens sem sló í gegn á Woodstock-hátíðinni í ágúst 1969 lést í vikunni sem leið, 72 ára að aldri. Óli Palli fjallar um feril hans og spilar nokkur lög með honum í þættinum.
Söngvarinn Bogomil Font var hérumbil óþekkt stærð þegar hann mætti í beina útsendingu á Rás 2 í júlí 1992 og söng nokkur lög. Hann og millarnir voru þá ekki búnir að gefa út sína fyrstu plötu. Þessi heimsókn Bogomils og Millanna verður rifjuð upp í þættinum.
Clapton is God var málað og krotað á veggi í London þegar enski tónlistarnmaðurinn Eric Clapton var rétt rúmlega tvítugur, hann þótti svo gríðarlega fær á gítarinn.
Nýlega sendi hann frá sér sína 21. Hljóðversplötu. Hún heitir Old Sock og inniheldur lög eftir ýmsa meistara á borð við Oscar Hammerstein og Jerome Kern og George og Ira Gershwin, en líka Taj Mahal, JJ. Cale og Peter Tosh. Clapton er kominn á ellilífeyrisaldur og loksins orðinn „gamall blúsmaður“. En er eitthvað varið í þetta? Allt um það í Rokklandi.
↧
↧
Það jafnast ekkert á við djass...
Jakob Frímann Magnússon varð sextugur í gær (04.05.2013) og af því tilefni er hann heiðursgestur Rokklands í dag.
Í þættinum segir Jakob sögur af sjálfum sér, samferðamönnum, lífinu í músíkinni auk þess sem Óli Palli og Jakob skauta í gegnum sólóplöturnar hans Jakobs og önnur verk hans sem minna hefur farið fyrir en verkum Stuðmanna.
Sólóplötur Jakobs eru djass og bræðingsmegin í tilverunni og hafa heyrst talsvert minna en plötur Stuðmanna. En það verða spiluð lög af þeim öllum í Rokklandi dagsins.
↧
Vínyll, plötubúðir og diskó
Franska hljómsveitin Daft Punk og nýi smellurinn sem dúettinn gerði með gamla diskóboltanum Nile Rodgers koma við sögu í Rokklandi dagsins á Rás 2.
Dr. Gunni og Trausti Júlíusson tjá sig um vínyl og plötubúðir og auk þess verður boðið upp á heilan helling af splunkunýrri músík.
↧
It´s too high for me Bo...
Þetta sagði Rod Stewart við Björgvin Halldórsson þegar Björgvin og félagar plötuðu Rod upp á svið á Broadway vorið 1985. Söngvarinn var staddur á Íslandi í þeim tilgangi að sjá landsleik Íslands og Skotlands í knattspyrnu en var boðið á fegurðarsamkeppni Íslands á Broadway í Mjódd.
Hann tók lagið með Bo & co og Björgvin segir frá þessu í Rokklandi dagsins.
Jakob Frímann Magnússon segir frá kynnum sínum af Rod, en sá sem opnaði Rod dyrnar inn í bransann á sínum tíma er sami maðurinn og fékk hinn 19 ára gamla Jakob með sér í tónleikaferðir um Bretlan og Bandaríkin á sínum tíma. Long John Baldry heitir maðurinn, sá hinn sami og söng lagið She broke my heart inn á fyrstu plötu Stuðmanna árið 1975.
Rod Stewart var að senda frá sér plötuna Time sem gerði sér lítið fyrir og settist í toppsæti breska vinsældalistans þegar hún kom út, en þeim árangri hefur rámur ekki náð síðan árið 1991. Time er líka fyrsta platan hans þar sem hann semur lögin sjálfur í meira en 20 ár.
Rod segir frá plötunni sjálfur í þættinum og Óli Palli rekur feril hans frá því han var að stíga fyrstu skrefin á tónlistarbrautinni í London fyrir hálfri öld og til dagsins í dag.
Kött Grá Pje kallar hann sig maðurinn á bakvið lagið Aheybaró sem heyrst hefur talsvert á Rás 2 undanfarið. Hann heitir Atli og er frá Akureyri. Hann segir okkur frá Kött Grá Pje í Rokklandi.
↧
Rokk og Folk frá Reykjavík og London...
Savages, Laura Marling og Snorri Helgason eru í aðalhlutverki í Rokklandi í dag (09.06.2013)
Laura Marling er 23 ára gömul stelpa frá Englandi sem líkt hefur verið við meistara söngvaskáldanna, Joni Mitchell og Bob Dylan. Hún yfirgaf England í fyrra og býr núna í Kalifoníu. Hún sendi nýlega frá sér fjórðu plötuna sína sem gagnrýnendur hafa hrósað endalaust. Laura kemur við sögu í Rokklandi og auðvitað lög af nýju plötunni hennar sem heitir When I Was An Eagle.
Stelpnabandið Savages frá London er sjóðheitt. Savages þykir minna á Patti Smith, Joy Division og fleiri hetjur post-pönksins. Savages er um þessar mundir að leggja heiminn að fótum sér og liður í því er umfjöllum í Rokklandi vikunnar.
Snorri Helgason er staddur í Nashville um þessar mundir við upptökur nýrrar plötu. Í mars var hann staddur í Reykjavík og spilaði þá á Reykjavík Folk Festival ásamt hljómsveit sinni. RÚV hljóðritaði og við heyrum hvernig það var í þættinum.
Einnig koma við sögu listamenn og hljómsveitir eins og Airbourne, Volbeat, Jeff Tweedy og Mavis Staples, Lambchop, British Sea Power og Bj. Thomas, Lonnie Donegan og Howlin Wolf.
↧
↧
Homer fílar Sigur Rós
Hljómsveitin Sigur Rós sendir frá sér sjöundu plötu sína í dag. Hún heitir Kveikur og er mál málanna í Rokklandi vikunnar.
Í þættinum kemur hljómsveitin Band Of Horses sem spilaði í Eldborg í Hörpu sl. þriðjudagskvöld aðeins við sögu. Tónleikarnir voru frábærir og voru teknir upp fyrir Rás 2. Á tónleikadag komu þeir í viðtal til Óla Palla þeir Bill bassaleikari og söngvarinn og gítarleikarinn Ben Bridwell. Ben segir í þættinum t.d. frá laginu No one´s gonna love you.
Tónlistin í kvikmyndinni The Great Gatsby sem verið er að sýna í bíóhúsum núna kemur líka við sögu, en þar eru nýjar, en gamaldags útgáfur laga Beyoncé og Roxy Music.
En hljómsveitin Sigur Rós sló í gegn á Íslandi sumarið 1999 þegar platan Ágætis Byrjun kom út. Með hverju árinu sem hefur liðið síðan þá hefur vegur Sigur Rósar vaxið og í dag er Sigur Rós eitt magnaðasta tónleikaband heimsins. Heimsþekkt hljómsveit sem er meira að segja búið að gera ódauðlega í Simpsons þætti.
Núna í dag (17. Júní) kemur út ný plata með Sigur Rós, sjöunda stóra platan, og þar kveður við nýjan tón. Á burt er strengja-dramatíkin sem hefur hálfpartinn einkennt tónlist Sigur Rósar frá Ágætis Byrjun, og nú stígur Sigur Rós (sem er tríó síðan í fyrra eftir að Kjartan Sveinsson hljómborðs og gítarleikari hætti) fram með talsvert þyngri músík og öðruvísi en maður hefur átt að venjast frá hljómsveitinni.
Þeir Goggi bassaleikari og Orri trommari eru gestir Rokklands að þessu sinni og fara yfir plötuna lag fyrir lag.
↧
Nick Cave elskar Laxness
ick Cave las Sjálfstætt fólk eftir Laxness og finnst hún frábær. Hann var á línunni í Rokklandi sunnudaginn 30. júní.
Óli Palli ræðir við Cave, sem kom fram á ATP hátíðinni í Kaflavík í gærkvöld ásamt hljómsveitinni sinni The Bad Seeds, um trúmál, Johnny Cash, Ísland og ýmislegt fleira.
ATP hátíðin verður líka í brennidepli í Rokklandi og ýmislegt annað.
Annars er það helst að frétta af Nick Cave og tónleikum hans í gær á ATP að þeir voru magnaðir, sveitin spilaði í hátt í 2 tíma og mörg sínum þekkstustu lögum í bland við lög af nýjustu plötunni, Push The Sky Away.
Cave féll niður af sviðinu í öðru lagi tónleikanna. Hann stóð þá á mjóum rampi sem stóð útfrá sviðinu og þegar hann steig til baka og ætlaði til félaga sinna á sviðinu hitti hann ekki á rampinn og féll framfyrir sig. Hvarf sjónum tónleikagesta.
Hljómsveitin hélt áfram að spila lagið Jubilee street sem var einn af hápunktum tónleiianna en í tæpa mínútu voru tónleikagestir á milli vonar og ótta um hvort hann myndi halda áfram með tónleikana eða ekki. En svo birtist hann aftur og lét eins og ekkert hefði í skorist. Þegar lagið var svo búið sagði hann að rampurinn væri „helvíti slæm hugmynd“ og að þar vantaði handrið.
Þessi lagalisti er skrifaður eftir minni og ekki víst að hann sé alveg réttur:
We No Who U R
Jubilee Street
From Her to Eternity
The Weeping Song
Deanna
Mermaids
Jack the Ripper
Tupelo
God Is in the House
We Real Cool
Papa Won't Leave You, Henry
The Mercy Seat
Stagger Lee
Push the Sky Away
UPPKLAPP
Red Right Hand
↧
Langbest á Bræðslunni!
Í Rokklandi sunnudagsins verður boðið upp á það besta frá Bræðslunni 2013.
Óli Palli segir Bræðslusögur og spjallar við listamennina sem koma fram á Bræðslunni í ár, en þátturinn verður sendur út beint frá Borgarfirði eystra.
Þeir sem fram koma eru:
Ásgeir Trausti
Magni
John Grant
Bjartmar og Bergrisarnir
Mannakorn
↧