Í þættinum að þessu sinni verða Evverly Brothers í aðalhlutverki í fyrri hlutanum en Neil Young og Ledfoot í þeim seinni.
Í seinni hluta þáttarins veltum við fyrir okkur olíu-iðnaðinum. Ástæðan er sú að kanadamaðurinn Neil Young fór í stutta tónleikferð um Kanada í þar-síðustu viku í þeim tilgangi að vekja athygli á umhverfispjöllum af völdum olíuvinnslu á veiðilendum Athabasca indiána í Alberta í Kanada.
Hann spilaði í Toronto, Winnipeg, Regina og Calgary til að safna fé til að standa straum af málarekstri gegn fyrirtækjum sem vinna olíu úr tjörusandsteini þarna á þessu svæði sem er eins og eitt og hálft Ísland, flakandi sár, drullupollur. Neil gengur svo langt að hann segir að umhverfisspjöllin séu svo hrikaleg að þeim sé helst hægt að líkja við afleiðingar kjarnorkusprengingarinnar í Hiroshima. Óli Palli ræðir þetta við Ólaf Ingólfsson prófessor í jarðfræði við Háskóla Íslands og Háskólasetrið á Svalbarða.
Í seinni hlutanum kemur Bandaríski tónlistarmaðurinn Ledfoot einnig vig sögu. Hann heimsótti Rás 2 á föstudaginn og spilaði í std. 12. Á meðal þess sem hann spilaði var lagið hans sem Bruce Springsteen fékk lánað og er titillag nýjustu plötunnar hans; High Hopes, sem er mest selda platan í heiminum í dag.
Í fyrri hlutanum eru Everly Brothers í aðalhlutverki. Phil Everly, yngri bróðirinn, lést núna 3. Janúar sl. af völdum reykinga, 74 ára að aldri. Í þættinum er skautað aðeins yfir feril Everly Brothers sem höfðu mikil áhrif á rokksögunna, meira að segja á Bítlana.
Þar að auki veðrur fjallað aðeins um plötuna Foreverly sem þau Norah Jones og Billy Joe Armstrong sendu frá sér fyrir skemmstu, en þar endurgera þau plötu sem Everly Brothers gerðu árið 1958.
↧
Olía - indíánar og Everly Brothers
↧
Baráttumaður með banjó að vopni
Bandaríski Þjóðlagasöngvarinn og baráttumaðurinn Pete Seeger lést í vikunni sem leið 94 ára að aldri.
Hann spilaði og söng næstum alla sína ævi fyrir fólk. Hann var mikill frumkvöðull, vinur lítilmagnans og söng fyrir þá undirokuðu allt til dauðadags. Hann er risastór hlekkur í tónlistarsögu Bandaríkjanna á síðustu öld og á meðal lærisveina hans má nefna Peter Paul & Mary, Bob Dylan, Bruce Springsteen, The Clash og Rage Against The Machine. Það verður skautað yfir langan feril Pete Seeger í fyrri hluta Rokklands.
Í seinni hlutanum kynnumst við lítillega þremur tónlistarmönnum frá Denver í Colarado sem koma fram á tónleikum í Iðnó í Reykjavík næsta fimtudag undir yfirskriftinni; Denver calling Reykjavík.
Síðast en ekki síst heyrum við svo nokkur lög af safnefndri plötu kvenna-hljómsveitarinnar Warpaint frá Los Angeles sem kom út um miðjan janúar.
↧
↧
Grafískur gítarleikari og David Crosby
Rúnar Þórisson sem fólk þekkir hugsanlega best sem hinn frábæra gítarleikara hljómsveitarinnar Grafík er aðalgestur Rokklands að þessu sinni.
Rúnar er Hafnfirðingur sem flutti vestur til Ísafjarðar rétt rúmlega tvítugur í þeim tilgangi að ganga til liðs við hljómsveitina Ýr. Þar kynntist hann Rafni Jónssyni sem varð einn af hans bestu vinum og saman stofnuðu þeir hljómsveitina Grafík árið 1981 sem varð ein vinsælasta og virtasta hljómsveit níunda áratugarins.
Rúnar sendi nýlega frá sér sína þriðju sólóplötu og þá fyrstu þar sem hann syngur sjálfur flest lögin. Platan heitir Sérhver vá og á meðal þeirra sem aðstoða Rúnar á plötunni eru dætur hans, söngkonurnar Lára og Margrét og svo tengdasynirnir; Addi trommari (Dr Spock, Pollapönk, Mugison ofl) og Brikir Rafn Gíslason (Lára, Lay Low, Bjartmar og Bergrisarnir ofl).
Í seinni hluta þáttarins spilar Óli Palli lög af nýjum plötum og séstaklega tveimur. Annarsvegar nýrri plötu Davids Crosby úr CSN&Y sem 72 ára gamall en syngur eins og engill þrátt fyrir ýmsa erfiðleika sem hann hefur gengið gegnum á langri ævi.
HInsvegar er það svo ný plata með Broken Bells sem þeir skipa þeir Danger Mouse og James Mercer úr hljómsveitinni The Shins, en platan þeirra sem heitir After The Disco hefur vakið mikla athygli undanfarið.
The National, Nina Persson og José González koma líka við sögu.
↧
Ekki fara frá mér...
Lög um ástina sem var en er ekki lengur verða í aðalhlutverki í Rokklandi vikunnar.
Óli Palli veltir sér upp úr ástinni í fyrri hluta þáttarins í tilefni Valentínusardags sem var á föstudaginn (14. febrúar). Það er nóg til af lögum um ástina og ástfangið fólk en hér er fókusinn settur á lög um ástina þar sem annar aðilinn er ekki lengur til staðar, farinn ? búinn að kveðja, segja bless af einhverjum ástæðum. En vandamálið er að hinn aðilinn getur bara ekki sætt sig við stöðuna. Það getur orðið ansi mikill hiti á slíkum stundum, og í mörgum tilfellum í gegnum aldirnar og árþúsundin hefur fólk hreinlega tapað vitinu og aðrir sjálfu lífinu. Flestir jafna sig nú, amk. með tímanum og hlæja jafnvel að sjálfum sér að einhverjum tíma liðnum. En meðan þetta ástand varir er lífið blátt og brotthætt og margir mögnuðustu lagahöfundar heims hafa jafnvel samið sín bestu lög í þessu ástandi.
Á meðal tónlistarmanna sem koma við sögu í ástar-hluta þáttarins má nefna Elvis, Bubba, Röggu Gísla, Radiohead, Jackson 5, Bob Dylan, Sinéad O´Connor, Cardigans, Ettu James og meira að segja John Travolta.
Sérstakir gestir þáttarins eru Kamilla Ingibergsdóttir kynningarstjóiri Iceland Airwaves, Hjalti Jón Sverrison stofnandi Facebook grúppunnar Þrumur í Þokunni, Kristinn Pálsson tónlistarfræðingur og Páll Ragnar Pálsson tónskáld og gítarleikari úr Maus. Þau velja öll lag í þáttinn og segja frá laginu.
Nina Persson söngkona sænsku hljómsveitarinnar The Cardigans sendi nýverið frá sér sína fyrstu sólóplötu og hún kemur við sögu í seinni hluta þáttarins.
↧
Alltaf með penna segir gítarleikari Kiss
Lykillinn að velgengni er að vera alltaf með penna segir Bruce Kulick fyrrum gítarleikari Kiss sem er aðalgestur Rokklands í dag (23.02.2014)
Bruce Kulick fyrrum gítarleikari hljómsveitarinnar Kiss var staddur á Íslandi fyrir nokkrum vikum. Hann er aðalgestur Rokklands að þessu sinni og ræðir við Óla Palla um heima og geima; Æsku sína í New York, Bítlana, Hendrix og aðra áhrifavalda. Árin 12 með Kiss, Bat Out Of Hell túrinn með Meatloaf þegar hann var rétt rúmlega tvítugur, hljómsveitina Meik sem hann spilaði með á Íslandi, Grand Funk Railroad sem hann spilar með í dag og ýmislegt fleira.
Tónlist Kiss hljómar að sjálfsögðu í þættinum og er í aðalhlutverki en einnig verður boðið upp á upptökur með Bruce Kulick og hljómsveitinni Meik sem hann spilaði með á Spot í Kópavoginum á dögunum. Í Meik eru Þráinn Árni úr Skálmöld, Einar Þór úr Dúndurfréttum, Jónsi úr Stjórninni, Jóhann Hjörleifsson trommari úr Sálinni Hans Jóns Míns, Eiður bassaleikari úr Todmobile og Magni Ásgeirsson syngur.
↧
↧
Oscar, Justin og ofur-Tommy
í Rokklandi dagsins kemur stórstjarnan Justin Timberlake sem ætlar að skemmta fólki í Kópavogi í sumar, við sögu.
Dagskrárstjóri Rásar 2, gítar og mandólínleikarinn Magnús R. Einarsson segir okkur frá Ofur-gítarleikaranum Tommy Emmanuel sem er með tónleika í Háskólabíói næsta laugardagskvöld - 8. Mars.
En fyrri hluti þáttarins er helgaður þeim lögum sem, hafa hlotið Oscars-verðlaun í flokknum "best original song" eða besta lag frumsamið fyrir kvikmynd undnafarin 20 ár, en þar eru lög eins og My heart will go on úr Titanic, Skyfall úr samnefndri Bond-mynd og Streets of Philadelphia úr kvikmyndinni Philadelphia.
Oscars-verðlaunin verða afhent í kvöld í Los Angeles og RÚV sýnir frá því beint og á meðal laga sem eru tilnefnd í þessum flokki í ár eru Ordinary love með U2 úr kvikmyndinni Mandela: Long walk to freedom og Happy með Pharrell Williams úr Aulinn ég 2.
↧
Devo - Young - Bowie - Dylan - Björk...
Devo - Young - Bowie - Dylan - Björk...
Fyrst birt: 09.03.2014 10:42, Síðast uppfært: 09.03.2014 20:03
Flokkar: Tónlist, Rás 2, Rokkland
Hlusta iWebreader. Ýttu á enter til að hefja lestur
Prenta
Deila á Facebook
Senda frétt
Þátturinn í dag er fjölbreyttur og kemur víða við. Á meðal þeirra sem koma við sögu eru Bob Dylan og 30 ára útgáfu-afmælið hans í New York árið 1992, David Bowie, Coldplay, Neil Young og Devo, Record store day, Sub Pop plötu-útgáfan, Stopp - gætum garðsins tónleikarnir í Hörpu 18. mars nk ofl.
David Bowie gaf út lagið Rebel Rebel í febrúar 1974 - Sagan af því verður sögð í Rokklandi.
Coldplay sendir frá sér sjöttu plötuna, Ghost Stories í maí og Óli Palli ætlar að spila nýju lögin tvö sem sveitin er búin að sleppa í loftið og fleira nýlegt með Coldplay líka.
Hljómsveitin Devo kemur við sögu, en einn af liðsmönnum hljómsveitarinnar lést núna fyrir skemmstu. Neil Young fékk Devo til liðs við sig á sínum tíma, um það leiti þegar sveitin var að slá í gegn fyrir 35 árum síðan. Devo og Neil taka t.d. lagið saman í kvikmyndinni Human Highway sem Neil framleiddi og leikstýrði árið 1978. Við heyrum í þættinum hvernig það hljómaði.
Plötubúðadagurinn ? Record store day er 19. Apríl nk. og þann dag kemur út plata með Neil Young frá árinu 1973 sem hefur ekki verið til síðan hún var ný. Þetta var næsta plata á eftir metsöluplötunni Harvest sem hefur að geyma Heart of gold m.a. Platan heitir Time Fades Away og verður endúrútgefin í fyrsta sinn á Record store day.
18. mars nk. verða haldnir tónleikar í Eldborg undir yfirskriftinni Stopp ? gætum garðsins. Tónleikarnir eru samvinnuverkefni bandaríska kvikmyndaleikstjórans Darren Aronofsky, Bjarkar, Landverndar og Náttúruverndarsamtaka Íslands. Þeir tónlistamenn sem fram koma á tónleikunum eru: Highlands, Patti Smith, Of Monsters and Men, Samaris, Retro Stefson, Björk, Mammút og Lykke Li. Rokkland fór á blaðamannafund sem var haldinn vegna tónleikanna í vikunni sem leið og þar töluðu Björk, Darren Aronofsky, Grímur Atlason og Andri Snær Magnason.
Árið 1992 voru haldnir tónleikar í Madison Square Garden til heiðurs Bob Dylan í tilefni af 30 ára útgáfuafmæli hans. Þar var rjóminn af bransanum, hálfgert heims-lið sem spilaði lög Dylans fyrir hann og okkur hin. Á meðal þeirra sem þarna komu fram voru Eric Clapton, George Harrison, Johnny Cash, Willie Nelson, Lou Reed, The Band, Sinéad O´Connor, Booker T. & The MG´s, Neil Young og margir fleiri. Tónleikarnir voru sendir út beint í sjónvarpi um allan heim og síðan gefnir út á CD og VHS. Núna í vikunni kom þetta út aftur og í fyrsta sinn á DVD og Blue Ray. Við skoðum þetta aðeins í Rokklandinu í dag.
↧
Damon - Diplo - Zeppelin og ÍTV
Damon Albarn með nýja plötu, Diplo vinnur með The Clash, Zeppelin gefa út týnd lög og allskonar!
Íslensku tónlistarverðlaunin voru afhent í Hörpu í föstudaginn og í beinni á Rás 2 og á RÚV. Í Rokklandi verður eitt og annað frá verðlaununum rifjað upp og spjallað við vinningshafa og aðra gesti.
Allskyns fyrirtæki ? stór og smá um allan heim gera eitt og annað til að bæta ímynd sína. Sum fyrirtæki stykja umhverfisvernd, önnur íþróttastarf og sum styðja við bakið á tónlistarmönnum, eða fá tónlistarmenn til að gera eitthvað skemmtilegt í sínu nafni. Skóframleiðandinn Converce er einn af þeim og fékk á dögunum Diplo, Frank Ocean og Paul Simonon og Mick Jones úr Clash til að gera lag saman. Það verður sagt frá því í þættinum.
Damon Albarn kemur við sögu og fyrsta sólóplatan hans sem kemur út innan skamms og líka Led Zeppelin, en það eru vantanlegar í búðir endurútgáfur af þremur fyrstu Zeppelin plötunum með aukalögum sem aldrei hafa heyrst áður.
↧
Þórunn með Beck og Patti Smith með Eyþóri
Þórunn Antonía söng inn á plötu með Beck fyrir nokkrum árum og Eyþór Gunnarsson spilað með Patti Smith í Eldborg í vikunni sem leið. Þetta kemur við sögu í Rokklandi dagsins. Líka norræni dagurinn sem er í dag og norræni spilunarlistinn sem Emiliana Torrini valdi í vikunni sem leið.
Beck sendi nýlega frá sér sína 12. Plötu. Hún heitir Morning Phase og hefur fengið fínar viðtökur. Hún minnir um margt á skilnaðarplötuna Sea Change sem Beck sendi frá sér árið 2002. Hljóðheimurnn er akústískur og dreymandi og mannskapurinn sem spilar á nýju plötunni er meira og minna sá sami og er á Sea Change. Við heyrum lög af plötunni í þættinum í dag og Beck segir okkur sjálfur frá henni. Þórunn Antonía Magnúsdóttir söng inn á plötu með Beck fyrir nokkrum árum og segir okkur frá þeirri reynslu.
Hin eina sanna Patti Smith var á landinu í vikunni sem leið. Hún kom hingað í þeim tilgangi að spila nokkur lög á Stopp ? gætum garðsins tónleikunum sem fóru fram í Eldborg í Hörpu síðasta þriðjudag. Ég spjallaði aðeins við Patti fyrr um daginn og hún sagði mér meðal annars hvers vegna hún var komin hingað til Íslands til að leggja náttúruverndarsamtökum Íslands lið. En við töluðum líka um þá sem spiluðu með henni í Hörpu, en það voru þeir Eyþór Gunnarsson og Guðmundur Pétursson. Og við töluðum líka aðeins um Neil Young sem er mikill vinur hennar Patti.
Norræni dagurinn svokallaði er í dag, hann er 23. mars ár hvert. Til þessa hefur ekki mikið farið fyrir þessum ágæta degi, en í ár mun verða einhver breyting á?t.d. prýða allir Norrænu fánarnir strætisvagna Kaupmannahafnarborgar í tilefni dagsins.
Nordic Playlist setur svo í gang í dag lítinn leik til að fagna deginum, þar sem einn heppinn vinningshafi getur unnið tvo miða á Hróarskelduhátíðina. Og Emiliana Torrini valdi þessa vikuna lögin á Norræna spilunarlistann og við heyrum eitthvað af þeim hérna á eftir
↧
↧
Hljómahöll og Future Islands
Rokkland heimsækir Hljómahöllina í Reykjanesbæ sem verður vígð næsta laugardag og segir frá hljómsveitinni Future Islands sem vakið hefur mikla athygli undanfarið,
Hljómahöllin er allt í senn, tónleikahús, rokksafn og tónlistarskóli. Tómas Young Hljómahallar-stjóri og bæjarstjórinn í Reykjanesbæ eru leiðsögumenn Rokklands í gegnum Hljómahöllina.
Bandaríska hljómsveitin Future Islands hefur vakið heimsathygli undanfarið með skemmtilegri sviðsframkomu kannski fyrst og fremst, en heimsókn sveitarinnar í þátt David´s Letterman í byrjun mars hefur farið eins og eldur í sinu um vefheima.
↧
Músíktilraunir og Rokkland í Tallinn
Rokkland var á Tallinn Music Week um síðustu helgi og á M'usíktirlaunum í gærkvöldi þar sem hljómsveitin Vio úr Mosfellsbænum sigraði.
Tallinn Music Week er einskonar Airwaves-hátíð þeirra Eista og var fyrst haldin árið 2009.
Tallinn Music Week er stærsta tónlistarhátíðin sinnar tegundar á þessu svæði, við Eystrasaltið og er í leiðinni tónlistar-ráðstefna þar sem músíkbransinn hittist og leggur á ráðin.
Á hátíðinni spila rúmlega 200 hljómsveitir á allskonar stöðum, litlum klúbbum og börum og stærri stöðum, í gömlum verksmiðjum og úti um allt. Borgin hreinlega iðar af lífi og tónlist þessa daga með hátíðin stendur yfir.
Á Tallinn Music hélt forseti Eistlands, hinn magnaði Thomas Hendrik Ilves stormandi ræðu um frelsið og rokkið og tengslin milli frelsis og rokks. Hann vitnaði í Arvo Pärt og Lou Reed, Rolling Stones og Johnny Rotten. Við heyrum brot úr ræðunni í Rokklandinu.
Á Tallin Music Week var líka blaðamannafundur með Pussy Riot og við heyurm brot úr honum.
Raftónlistarmennirnir Tonik og Ruxpin spiluðu á hátíðinni um þeir fóru með Óla Palla í göngutúr um Tallinn, en sá sem kallar sig Ruxpin heitir Jónas Þór Guðmundsson, er rúmlega þrítugur Kópavogsbúi sem býr í Tallinn. Er fornleifafræðingur á daginn og spilar teknó um helgar.
Úrslit Músíktilrauna réðust í gærkvöldi í Norðurljósum í Hörpu og í Rokklandinu í dag heyrum við í hljómsveitunum sem lenda á verðlaunapalli. 10 hljómsveitir spiluðu af hjartans lyst og skemmtu sér og áheyrendum. Að lokum stóðu þó eftirtaldir aðilar og hljómsveitir uppi sem sigurvegarar.
1.sæti: Vio
2.sæti: Lucy in Blue
3.sæti: Conflictions
Hljómsveit Fólksins: Milkhouse
↧
Friðrik Karlsson með Kate Bush
Konur verða í aðalhlutverki í seinni hluta Rokklands á sunnudaginn og þá aðallega tvær.
Fyrst er það Kate Bush sem er að fara að halda 22 tónleika í London síðla sumars en hún hefur ekki haldið tónleika í 35 ár, eða síðan 1979. Það sem meira er að með henni á sviðinu verður Friðrik Karlsson úr Mezzoforte sem er auðvitað einn besti gítarleikari Íslands og þó víðar væri leitað, en í bandinu er líka t.d. trommarinn Omar Hakim og hinn gítarleikarinn hefur verið í hljómsveit Peter Gabriel um árabil.
Svo er það hin unga danska tónlistarkona; MØ sem var á síðustu Airwaves hátíð, en hún fékk gullið hjá P3, danska Ríkisútvarpinu um síðustu helgi og það voru hlustendur stöðvarinnar sem völdu hana listamann ársins. Og átrúnaðargoð hennar úr æsku, sjálf sporty Spice (Mel C) afhenti henni verðlaunin. Við kynnumst MØ í Rokklandi og heyrum nokkur lög af plötunni hennar sem er nýkomin út.
Hljómsveitin Blondie kemur við sögu í fyrri hlutanum. Það er ný plata á leiðinni og Debby Harry orðin 68 ára gömul.
Svo verður boðið upp á tóndæmi frá tónleikum Todmobile og Jon Anderson í Eldborg í nóvember, heyrum 2 Yes-lög; Owner of a lonely heart og Roundabout, en tónleikarnir verða í fullri lengd á dagskrá Rásar 2 um páskana.
Bruce Springsteen spilaði plötuna Born in the USA sem kom út árið 1984 í heild sinni á tónleikum í fyrra og í Rokklandi og þeir tónleikar voru að koma út á diski sem fylgdi sérstöku upplagi nýjustu plötunnar hans, High Hopes núna í byrjun árs. Rokkland ætlar að kíkja aðeins á þessa tónleika og spila nokkur lög.
↧
Kiss eru Bítlar minnar kynslóðar...
Sagði Tom Morello gítarleikari Rage Against The Machine í vígsluræðu sinni þegar Kiss var tekin inn í frægðarhöll rokksins í Ameríku fyrir 10 dögum.
Það var gríðarlega mikið fjallað um Kiss og frægðarhöllina í aðdraganda þess að sveitin var vígð inn og Óli Palli ætlar að segja frá því í Rokklandi páskadags. Tom Morello segir líka frá mikilvægi Kiss í rokksögunni og meðlimir sveitarinnar tjá sig um Rock´n roll hall of fame.
Þann 25. mars síðastliðinn, rúmum áratug eftir andlát Johnny Cash, kom breiðskífan Out Among the Stars út. Platan inniheldur upptökur frá níunda áratugnum, sem útgáfufyrirtæki Cash hafði lagt til hliðar, en sonur hans, John Carter Cash, fann upptökurnar árið 2012. Gagnrýnendur hafa tekið nokkuð vel í plötuna og segja margir hana hafa getað verið eina af sterkustu plötum Cash á níunda áratugnum, en meðal plötudóma má nefna 7/10 hjá Paste, 7,3/10 hjá Pitchfork og 8/10 hjá The Guardian. Platan verður til umfjöllunar í þættinum.
Alþjóðlegi plötubúðadagurinn (Record store day) var í gær (19. apríl) og í þætti dagsins verður fjallað um nokkrar af þeim útgáfum sem komu út í tilefni dagsins, en Of Monsters And Men, R.E.M, John Grant, CCR og Ásgeir Trausti t.d. gáfu út plötur (vinyl) í tilefni dagsins.
↧
↧
Rafmagnslaus R.E.M. og rafmögnuð Zeppelin
Það kennir ýmissa grasa í Rokklandi dagsins (27.04.2014)
Við heyrum Led Zeppelin á tónleikum, REM Unplugged hjá MTV, Bítlalög með Arethu Franklin, Willie Nelson, Little Richard, Randy Travis og Ron Sexsmith t.d.
Svo verður boðið upp á nýja músík með Jack White, Conor Oberst, Liam Finn, Ben Watt, Afgan Whigs, Arc Iris, The Delines, Oh Land, George Michael ofl.
↧
Sex Pistols og England og Eurovison
England er staðurinn í Rokklandinu í dag.
Í fyrri hlutanum er það pönk eins og það gerist best og mest, en Eurovision í seinni hlutanum.
Það rennur allt saman í dag ?Pöllapönk í Kaupmannahöfn til að taka þátt fyrir hönd Íslands í Eurovision. Pönkararnir komnir í Eurovision og pönkararnir halda hátíð á Spot í Kópavogi næsta fimmtudag. Afi orðinn amma mín.
Í seinni hluta þáttarins skoðar Óli Palli England, heimavöll pönksins, og hvernig þeim hefur gengið í Eurovision í gegnum tíðina. Lengi vel framan af gekk Englandi ansi vel, en undanfarin ár hafa ekki verið Englendingum svo góð í söngvakeppninni miklu. Það er eiginlega alveg saman hvaða stjörnum þeir dusta rykið af, árangurinn er lítill sem enginn og stigin fá.
En í fyrri hlutanum er það pönk fyrr og nú. Það er nefnilega þannig að næsta fimmtudag verða haldnir pönktónleikar í Kópavoginum, heimabæ íslenska pönksins, þar sem frumpönkarar eins og Q4U og Fræbbblarnir ætla að spila, en aðalnúmerið, heiðursgesturinn er náungi sem heitir Glen Matlock og var bassaleikari og einn aðal lagasmiður pönkhljómsveitar númer eitt, nefnilega Sex Pistols. Óli Palli hringdi í hann í vikunni sem leið og þeir ræða um pönk-heima og geima í Rokklandi.
↧
ATP = All Tomorrow´s Parties
ATP hátíðin sem haldin verður á Ásbrú, gamla kanavellinum helgina 10.-12. júlí heitir eftir gömlu Velvet Underground lagi.
Tómas Young framkvæmdastjóri hátíðarinnar kemur í heimsókn í Rokkland og segir frá hátíðinni og tónlist með þeim hljómsveitum og listamönnum sem spila á hátíðinni heyrist í þættinum. Þeir sem koma við sögu eru Kurt Vail & The Violators, Swans, Portishead, Interpol, Swans, Low Roar, Náttfari, Neil Young & Crazy Horse, Mogwai ofl.
Tæplega 5.000 miðar eru í boði á hátíðina og nú þegar hafa erlendir ferðamenn nælt sér í rúmlega 1000 af þeim.
↧
Hver er þessi Pharrell...
...og hvers vegna er hann svona Happy?
Í Rokklandi í kvöld (20. maí) ætlar Óli Palli að skauta yfir feril tónlistarmannsins og upptökustórans Pharrel Williams sem er höfundur ofusmellsins Happy sem hann samdi fyrir teiknimyndina Aulinn ég og hann er líka einn af höfundum lagsis Get lucky sem var eitt vinsælasta lag heims í fyrra.
En Pharrell er alls enginn nýgræðingur í bransanum, er búinn að vera einn heitasti upptökustjóri popp-heimsins undanfarin 10-15 ár, hefur unnið með fólki á borð við Madonnu, Justin Timberlake, The Hives, Jay-Z, Britney Spears, Gwen Stefani, Kelis, Snoop Dogg ofl.
Pharrell sendi frá sér sína aðra sólóplötu fyrir skemmstu, hún heitir Girl og þar er smellurinn Happy t.d.
Coldplay var líka að senda frá sér plötu. Hún heitir Ghost stories og nokkur lög af henni munu heyrast í þættinum og einnig eitthvað meira af nýrri músík.
↧
↧
Ný tónlist með fólki á öllum aldri...
Rokkland verður að þessu sinni undirlagt af nýrri tónlist úr ýmsum áttum.
Hljómsveitin Kaleo var í Eistlandi í vikunni sem leið og við heyrum upptöku með þeim úr Eistneska ríkisútvarpinu - Raadio 2. Pabbi Rubins gítarleikara; Mike Pollock (sem var í Utangarðsmönnum) kemur líka við sögu en hann og Siggi Sig eru að fara að senda frá sér Ep plötu.
Svo er það ný músík með t.d. Jack White, Blondie, Chrissie Hynde úr Pretenders, MO frá Danmörku, Willie Nelson, R.E.M. og The Whigs sem er frá Athens í Georgiu eins og R.E.M. Við heyrum af nýju skrýtnu plötunni hans Neil Young sem hann hljóðritaði í upptökuklefanum í plötubúðinni hans Jack White í Nashville, Third Man store ? græja frá 1947 og hljómgæðin eftir því.
Svo er það Ok Go frá Chicago, Sharon Jones and the Dap Kings - Sharon vann einu sinni sem fangavörður í Rikers Island fangelsinu í Bronx. Hljómsveitin James er með nýja plötu, líka Paul Weller, Paulo Nutini, Manic Street Preachers, Benjamin Booker og Sheryl Crow svo eitthvað sé nefnt.
Ný tónlist með fólki á öllum aldri.
↧
Sjómanna og sjóræningjalög
Rokkland á sjómannadaginn verður helgað að mestu sjómanna og sjóræningjalögum frá ýmsum tímum og ýmsum áttum.
Led Zeppelin kemur líka við sögu og Pharrel Williams og Michael Jackson smá, en en hafið og sjómennirnir og sjómannlög eru í aðalhlutverki.
Það eru ekki Raggi Bjarna og Skapti Ólafsson sem flytja þau í þetta skiptið heldur fólk eins og Tom Waits og Keith Richards, Sting, Macy Gray, Patti Smith, Michael Stipe, Lucinda Williams, Sean Lennon, Beach Boys, Bryan Ferry, Lou Reed, Anthony Hegarty, Marianne Faithful, Richard Thompson, Iron Maiden ofl.
↧
Góð stemmning í Pixies segir Joey Santiago
Bandaríska hljómsveitin Pixies sem hefur haft gríðarleg áhrif á rokksöguna spilar í laugardalshöll næsta miðvikudag. Af því tilefni verður Rokkland á sunnudag (Hvítasunnudag) helgað þessari merku hljómsveit sem hefur gengið svo illa að vera starfandi alla tíð.
Óli Palli sló á þráðinn til gítarleikara og annars stofnanda sveitarinnar, Joey Santiago í vikunni sem leið. Þeir ræða saman í þættinum um nýju plötuna, Indie Cindy, sem er fyrsta plata sveitarinnar síðan 1991. Þeir ræða líka brotthvarf bassaleikarans, hinnar fögru og flinku Kim Deal sem sagði skilið við hljómsveitina í fyrra, nýja bassaleikarann sem heitir Paz og spilaði m.a. með Billy Corgan, David Pajo og Jimmy Chamberlin í ZWAN, og ýmislegt fleira.
Í þættinum er líka skautað yfir stuttan en kraftmikinn feril Pixies frá 1988-1993 en á þeim tíma kom út fjórar breiðskífur og þar á meðal voru Surfer Rosa (1988) og Doolittle (1989) sem teljast báðar til bestu platna rokksögunnar.
Pixies er merkileg hljómsveit sem svo sannarlega hefur haft heljarinnar áhrif á þá sem á eftir hafa komið. Til marks um það þá hljóma amk. sumar plöturnar þeirra þannig að það er erfitt að heyra að þær hafi ekki verið teknar upp í ár eða í fyrra. Tónlistin er (amk ennþá) eins og tímalaus.
Kurt Cobain heyrði Surfer Rosa og var svo hrifinn að hann vildi ekki taka annað í mál en fá upptökustjórann Steve Albini til að taka upp plötuna In Utero sem varð síðasta plata Nirvana.
Pixies hætti árið 1993 en kom saman aftur áratug síðar og hefur spilað talsvert síðan, en fyrsta platan þeirra síðan 1991 kom út núna fyrir skemmstu. Hún heitir Indie Cindy og þykir þokkalegasta plata.
↧