...sagði Geoff Barrow annar af stofnendum hljómsveitarinnar Portishead þegar Ólafur Páll Gunnarsson spurði hann um upphafsdaga hljómsveitarinnar í símaspjalli í vikunni sem leið.
Rokkland er að mestu helgað þessari mögnuðu sveit í dag, en Portishead er eitt af aðalnúmerum ATP hátíðarinna sem fer fram á Ásbrú í Reykjanesbæ í júlí.
Óli Palli ræddi við Barrow um hátíðina sem Portishead tengist nú í fjórða skipti, um gamla heimabæinn, sjávarbæinn Portishead sem er skammt frá Bristol á Englandi, um plöturnar sem er einungis þrjár á 20 árum, en það eru 6 ár frá því síðasta plata, Third kom út, og ýmislegt fleira.
Radiohead kemur líka aðeins við sögu og ný músík úr ýmsum áttum.
↧
Þetta er allt á Wikipedia...
↧
Tod-Genesis og Secret Solstice
Rokkland er tvískipt þessa vikuna - proggað og vakandi alla nóttina...
Í fyrri hlutanum segir Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson hljómsveitarstjóri Todmobile okkur frá fyrirhuguðum tónleikum Todmobile í Hörpu næsta vetur þar sem Steve Hackett fyrrum gítarleikari Genesis mun koma fram með hljómsveitinni sem sérstakur gestur. Steve Hackett var lykilmaður í Genesis á progg-rokk tímanum uppúr 1970 Þegar Peter Gabriel söng með sveitinni og hún gaf út plötur á borð við The Lamb Lies Down On Broadway, Selling England By The Pound og Trick Of The Tail.
Við heyrum líka brot frá tónleikum Todmobile og Jon Anderson söngvara Yes sem fóru fram í Eldborg í fyrra og þar að auki splunkunýtt lag frá Todmobile.
Í seinni hlutanum kíkjum við á Secret Solstice tónlistarhátíðina sem fór fram í Laugardalnum um helgina í fyrsta sinn. Þar ræðir Óli Palli við nokkra af stjórnendum hátíðarinnar og lýsir stemmningunni.
↧
↧
Vélráð Dimmu og Neil Young kóverlagakeppn
Aðal Rokklands að þessu sinni er viðtal við þá Ingó Geirdal og Stefán Jakobsson úr hljómsveitinni Dimmu.
Nýjasta plata Dimmu, Vélráð, er þessa dagana í fyrsta sæti íslenska vinsældalistans. Hún er mest selda platan á Íslandi í dag. Það hefur verið uppgangur í íslenska Þungarokkinu á undanförnum árum og fólk á öllum aldri hlustar í dag á þungarokk og af þónokkurri ákefð. Skálmöld, Sólstafir, Brainpolice, Vintage Caravan og Dimma hafa allar átt miklum vinsældum að fagna en hvernig stendur á þessu? Þeir Ingó og Stefán reyna að svara þeirri spurningu og leiða hlystendur í gegnum nýju plötuna.
Sting kemur lítillega við sögu í þættinum en hann hefur verið að tjá sig um fíkniefnaneyslu, peningamál ofl. undanfarið. VIð skoðum það aðeins.
Í seinni hluta þáttarins verða leikin brot úr þeim 12 lögum sem eru komin í úrlsit Neil Young kóverlagakeppni Rásar 2 sem efnt var til í tilefni þess að Neil ætlar að spila ásamt hljómsveitinni sinni Crazy Horse í Laugardalshöll 7. júlí nk.
Alls bárust næstum 70 lög í kepnnina og dómnefnd skipuð starfsmönnum Rásar 2 hefur valið 12 af þeim bestu sem, var mjög erfitt verkefni vegna þess hveru mikið magn barst af góðum lögum og útsetningum.
Þegar þátturinn klárast kl. 18.00 sunnudaginn 29. júní verður opnað fyrir kosninguna á http://www.ruv.is/content/neil-young-koverlagakeppnin
↧
Frá Glastonbury til Rauðasands...
Rokkland þessarar viku er helgað tónlistarhátíðum sem fóru fram um síðustu og þar-síðustu helgi.
Í þættinum er boðið upp á brot frá tónleikum Robert Plant, Metallica og Dolly Parton á Glastonbury hátíðinni sem fór fram um þar-síðustu helgi. Við heyrum líka stutt viðtalsbrot við Robert Plant frá því þegar Óli Palli hitti hann á Glastonbury árið 1995 - fyrir næstum 20 áruð síðan. Þær ræddu lítilega saman um heimsóknina til Íslands árið 1969.
Í þættinum heyrist líka viðtalsbrot frá BBC við Lars Ulrich trommara Metallica sem var tekið strax eftir tónleika sveitarinnar á hátíðinni.
Matthías Már Magnússon sendir pistil frá Rockwerchter í Belgíu, Salka Sól talar frá Rauðasandi þar sem hún var um helgina og danski útvarpsmaðurinn Jan Sneum sendir pistil frá Roskilde Festival.
Í lok þáttar segir Ralph Molina trommuleikari Crazy Horse lítilega frá galdrinum á bakvið hljómsveitina, en Neil Young spilaði ásamt Crazy Horse í Laugardalshöll í gærkvöldi.
↧
ATP = Alveg Truflað Partí og Eistnaflug
Rokkland er búið að vera á ATP hátíðini í Reykjanesbæ síðan á fimmtudagskvöld og segir frá stemmningunni í þætti vikunnar.
Snæbjörn bassaleikari í Skálmöld er svo sendiherra Rokklands á Eistnalfugi og flytur okkur fréttir af fólki, stemmningu, veðri ofl. þaðan.
Þeir sem koma við sögu í þættinum eru Kurt Vile og Jesse vinur hans, Barry Hogan eigandi ATP, Tómas Young dagskrárstjóri ATP á Íslandi, Dr. Gunni, Low Roar, Portishead, Interpol, Jason Pierce og Spiritualized, Mogwai og hátíðargestir ýmsir.
↧
↧
Af drekatamningum og Eistnaflugi
Jónsi og Shane McGowan semja saman og Bibbi í Skálmöld var sendiherra Rokklands á Eistnaflugi.
Jón Þór Birgisson (Jónsi úr Sigur Rós) samdi ásamt kvikmyndatónskáldinu John Powell tvö lög fyrir teiknimyndina How To Train Your Dragon II sem er verið að sýna í bíó um þessar mundir. Það sem þykir merkilet í Rokklandi er að texta annars lagsins samdi enginn annar en Shane McGowan söngari The Pogues, en lítið hefur heyrst frá honum lengi. Júróvision sigurvegarinn norski, Alexander Rybak á líka lag í myndinni. Það verður fjallað um þetta í Rokklandi.
Bandaríski gítarleikarinn og tónlistarmaðurinn Johnny Winter lést í vikunni sem leið ? 70 ára að aldri. Hann spilaði fram í rauðan dauðan, var á tónleikaferðalagi og fannst látinn á hótelherbergi í Zurich í Swiss, var búinn að vera slappur og heilsulítill síðustu vikurnar. Rokkland minnist Johnny Winter sem var alla tíð gríðarlega hátt skrifaður í gítar-heiminum, spilaði með öllum þessum bestu og var af talinn einn af þeim bestu.
Það verður líka boðið upp á nýmeti með Holly Johnson úr Frankie Goes To Hollywood, Nile Rodgers og Alt-J.
Síðast en ekki síst verður svo farið á Eistnaflug með Bibba úr Skálmöld, en hann var þar sérstakur sendiherra Rokklands, -ræddi við löggur, hljóðmenn, tónlistarmenn og almenna gesti.
Í lok þáttarins talar Óli Palli um tónleika Neil Young og Crazy Horse sem voru í Laugardalshöll 7. júlí og spjallar einnig við Neil.
↧
Andvarinn frá Tulsa og Clapton vinur hans
Það er ár liðið frá andláti bandaríska tónlistarmannsins JJ Cale og um helgina kemur út platan Eric Clapton and Friends - The Breeze - An appreciation of JJ Cale.
Á plötunni spreyta Eric Clapton og ýmsir sameiginlegir vinir þeirra sig á tónlist JJ Cale sem lítið fór fyrir alla tíð. Hann lifði einföldu og fábrotnu lífi í Escondido í San Diego í Kaliforníu.
JJ Cale gerði lítið af því að koma fram á tónleikum en sendi alltaf af og til frá sér plötur og sú fyrsta kom út árið 1972, eftir að Eric Clapton gaf út lagið hans After midnight. JJ Cale var þá skítblankur upptökumaður í hljóðverum i Los Angeles og var næstum búinn að gefa alla tónlistardrauma upp á bátinn þegar lagið hans sló í gegn með Clapton. Í framhaldinu gerði hann sína fyrstu plötu, Naturally, og hjólin fóru að snúast. Það má halda líklega halda því fram að JJ Cale geti þakkað Clapton feril sinn, fjárhagslegt sjálfstæði og tilveru almennt.
Þeir sem koma við sögu á nýju plötunni er fólk á borð við Tom Petty, John Mayer, Don White, Wilie Nelson og Mark Knopfler svo einhverjir séu nefndir.
Í þættinum verður líka boðið upp á splunkunýja tónlist með fólki og hljómsveitum eins og; Lana Del Rey - Kate Hawnevik ? Beck - The Black Keys ? The Gaslight Anthem ? Basement Jaxx ? Royal Blood ? The Struts ? Thin Jim og Páll Rósinkrans ? Tómas Ragnarsson og Laila av Reyni frá Færeyjum og Elbow.
↧
Maður verður að gefa hjartað...
...annars er ekkert varið í þetta - segir Sigurður Bjóla Garðarsson í Rokklandi á morgun.
Þetta segir Sigurður Bjóla Garðarsson í Rokklandi vikunnar.
Óli Palli ræðir við þá Stuðmenn, Valgeir Guðjónsson, Jakob Frímann Magnússon, Egil Ólafsson og Sigurð Bjólu um plötuna Tívolí sem kom út árið 1976 og er af mörgum talin einn af hornsteinum íslenskrar dægurtónistarsögu.
Tívolí er önnur plata Stuðmanna, "consept" plata sem gerist í Tívolíinu sem starfrækt var í Vatnsmýrinni í Reykjavík um miðja síðustu öld, eða frá 1946 - 1964.
Á Tívolí koma við sögu litríkir karakterar eins og Frímann flugkappi, Fjallkonan, ofurskutlan Ólína, Hveitibjörn, Hr. Reykjavík ofl.
Sigurður Bjóla hefur ekki verið fyrirferðarmikill í fjölmiðlum undanfarna áratugi og það er hátíð í bæ í Rokklandi vegna opinberrar heimsóknar Bjólunnar í Rokkland. Rokkland lagði reyndar land undir fót og sótti Sigurð heim alla leið á Stokkseyri.
Hann segir í þættinum m.a. frá því hvers vegna hann sagði skilið við Stuðmenn á sínum tíma.
Stuðmenn hafa haft hægt um sig undnfarin ár og "telja ekki í" nema mikið standi til. Og núna 6. september nk. ætla Stuðmenn að spila Tívolí-plötuna í heild sinni á tónleikum í Eldborg í Hörpu.
↧
Jack White og Menningarnótt
Í Rokklandi dagsins verður boðið upp á upptökur frá Stórtónleikum Rásar 2 á Menningarnótt auk þess sem sagt verður frá nýjustu plötu snillingsins Jack White.
Rás 2 stóð í fyrsta sinn fyrir tónleikum á Menningarnótt árið 2003. Aðstandendur tónleikanna voru fullir bjartsýni og bjugggust við allt að 10.000 manns. Þær væntingar voru heldur betur toppaðar vegna þess að amk. 60.000 manns voru mætt á hafnarbakkann þegar flest var meðan Stuðmenn spiluðu. Árið eftir sagði lögreglan að 100.000 manns hafi verið á hafnarbakkanum meðan hljómsveitin Egó skemmti gestum Menningarnætur.
Í dag er fókusinn á upptökur frá fyrstu þremur árunum - 2003, 2004 og 2005 og hljómseitir eins og Quarashi, Sálina, Stuðmenn, Leaves, Írafár, Egó, KK & Maga Eiríks, Brimkló og Todmobile.
Í seinni hluta þáttarins er snillingurinn Jack White í aðalhlutverki og nýja platan hans sem heitir Lazaretto.
↧
↧
Tónaflóð á Meninngarnótt í Rokklandi
Í Rokklandi dagsins verður boðið upp á stytta útgáfu af Tónaflóði Rásar 2 sem fór fram á Arnarhóli í gærkvöldi.
Hljómsveitirnar sem komu fram voru:
Skálmöld
Mammút
Mono Town
NýDönsk
Gríðarlegur fjöldi gesta var í borginni og naut þess sem boðið var uppá á Menningarnótt og eftir því sem leið á kvöldið fjölgaði á Arnarhóli.
↧
Kalli var rebel sem fór móti öllu kerfi
Segir Sigurjón Sighvatsson um stóra bróður sinn Karl J. Sighvatsson í Rokklandi vikunnar sem er endurflutt í kvöld kl. 22.05
Næsta föstudagskvöld; 12. september verður Karlsvaka í Eldborg í Hörpu. Stórir og glæsilegir minningartónleikar um Karl Sighvatsson rokkstjörnu, organista og tónskáld. Þar kemur fram Kalla til heiðurs, hópur af frábærum listamönnum; Mugison, Megas, Ólafur Arnalds, Apparat Organ Kvartett, Gunnar Þórðarson, hljómsvetirnar Flowers, Mannakorn og Hjaltalín auk fjölmargra annarra. Þá verður efnt til sérstakrar Hammond orgíu, þar sem nokkrir af fremstu organistum landsins leiða saman hesta sína og Hammonda.
Af þessu tilefni er Rokkland helgað Kalla og leiðsögumaður er Sigurjón bróðir hans sem fæddist 18 mánuðum eftir Kalla og var með honum í hljómsveitum þegar þeir voru yngir, t.d. í Flowers sem var ein allra vinsælasta hljómsveit landsins árið sem Bítlarnir gáfu út Sgt. Peppers.
Kalli spilaði á Hammond orgel og fleiri hljómborð með Trúbrot, Flowers, Mannakornum, Þursaflokknum, Tónum, Dátum og fjölmörgum fleiri hljómsveitum og listamönnum. Hann samdi tónlist fyrir hljómplötur, leikrit og kvikmyndir, m.a. kvikmyndina Atómstöðina. Og það eru hans lög og lengri verk sem verða í fyrirrúmi á Karlsvökunni og hafa verið sérstaklega útsett fyrir stærri kammersveit, hrynsveit og kór, m.a. af Viktori Orra Árnasyni liðsmanni Hjaltalín.
Það heyrist líka í Kalla sjálfum í þættinum, en Lísa Pálsdóttir talaði við hann fyrir þáttaröð sem hún og Andrea Jónsdóttir gerðu fyrir Rás 2 þegar tímamóta-platan LIfun með Trúbrot varð 20 ára árið 1991.
↧
Biophilia = Björk = bezt
Í gær var frumsýnd í Bíó paradís kvikmyndin Biophilia Live sem sýnir Björk á sviði með sínu fólki á lokatónleikum Biophilia tónleikaferðarinnar í Alexandra Palace í London í fyrra.
Ólafur Páll Gunnarsson var viðstaddur sýninguna í gær og segir að myndin sé frábær og einstaklega sönn. Hún sýni Björk og hennar fólk í réttu ljósi á þessum lokatónleikum túrsins og það góða við myndina sé að engu sé breytt eftirá. Það er ekkert tekið aftur, Björk syngur ekkert aftur og myndin sýnir sanna mynd af Biophiliu á sviði. Myndin er svo listina skreytt með lifandi myndum úr náttúrunni og úr Biophilia appinu sem kom út samhliða plötunni (tónlistinni).
Óli Palli ræddi við Björk í Iðnó í gærdag (05.09.2014) um Biophiliu, tónleikaferðina og framtíðina og það er uppistaðan í Rokklandi vikunnar.
Biophilia er margmiðlunarverk búið til úr tónleikum og “Öppum? (snerti-virkni-smáforritum), sérsmíðuðum hljóðfærum, hljómplötu og kennslu.
Björk starfaði með forriturum, vísindamönnum, rithöfundum, uppfinningamönnum, tónlistarmönnum og hljóðfærasmiðum í margmiðlunarkönnun sinni á alheimslögmálum og þeim náttúrukröftum sem tengja saman tónlist, náttúru og tækni. Biophilia er innblásið af þessum tengslum og er rannsókn á því hvernig þau birtast í tónsmíðum og náttúrufyrirbrigðum bæði í minnstu frumeindum og á alheimsvísu.
↧
Söngvar sakleysis
Nýja U2 platan er til umfjöllunar og spilunar í Rokklandi vikunnar. Sitt sýnist hverjum og skoðanir eru sterkar á Bono og félögum sem fyrr.
U2 sendi í vikunni sér plötu - öllum að óvörum og það ókeypis fyrir alla sem vilja, alla sem erum með I-tunes.
Það eru næstum 6 ár liðin frá því síðasta plata U2, No Line On The Horizon, kom út og það hafði frést að ný plata með U2 kæmi hugsanlega út á þessu ári en það væri alls ekki víst. Það kom þess vegna mörgum á óvart þegar framkvæmdastjóri Apple fyrirtækisins, Tim Cook tilkynnti í vikunni sem leið þegar iPhone 6 var kynntur til sögunnar á blaðamannafundi í Cupertino í Kaliforníu, að ný plata liti dagsins ljós nokkrum sekúndum siðar.
Cook kynnti hljómsveitina á svið á ráðstefnunni og þar spilaði hún nýtt lag sem heitir The Miracle (of Joey Ramone) og er tileinkað Joey Ramone, söngvara The Ramones sem hafði mikil áhrif á Bono og félaga þegar þeir voru ungir strákar í Dublin.
Þegar hljómsveitin var búin að spila lagið sagði Tim Cook; "Er þetta er frábært lag! Væri ekki geggjað að fá heila plötu af svona?! En núna er spurningin; Hvernig komum við þessu svo til mikils fjölda fólks á sama tíma?" Bono svaraði; "Er ekki Apple með hálfan milljarð manna í I-tunes áskrift ? er ekki málið að koma þessu á það fólk". "Jú við skulum gera það og gefa fólki þessa músík - frítt!" 5 sekúndum síðar var platan komin um allan heim og þetta verður að teljast ein stærsta og viðamesta plötu-útgáfa sögunnar.
Hljómsveitin var 2 ár að smíða þessa plötu sem Apple gaf svo heiminum í vikunni. U2 var ekki að gefa plötuna heldur fékk hljómsveitin 100 milljónir dollara fyrir hana segir sagan. Apple ákvað að nýta plötuna og gefa hana öllum sem nota I-tunes. þetta er auglýsinga“brella“ ef fólk vill nota það orð, en það er soldið ljótt orð og gefur til kynna að það sé verið að plata fólk. Hér er engan verið að plata og þetta er enn ein leiðin fyrir tónlistarmenn að koma tónlistinni sinni á framfæri á tímum þegar allir vilja fá allt fyrir ekki neitt og tónlistarmennirnir tapa, fá lítið fyrir sinn snúð á meðan internet og síma-fyrirtæki græða á tá og fingri, t.d. á tónlist tónlistarmannanna.
Upptökustjórinn Danger Mouse (Brian Burton) var helsti samstarfsmaður U2 verið gerð plötunna en Flood, sem hefur unnið með U2 allar götur frá The Joshua Tree var gerð 1987, kom að vinnunni líka. Þar að auki lögðu þeir Paul Epworth og Ryan Tedder sín lóð á vogarskálarnar, en þeir eru helst þekktir fyrir að vera mennirnir á bakvið Adele. Bono segir að þeir hafi heldur betur gert gagn á plötunni og hjálpað þeim mikið. Og leiðarljósið sem vísaði þeim Bono og félögum veginn á plötunni eru eldri piltar og ídol á borð við Bítla og Stóns. Þeir vildu á þessari plötu gera góð lög sem gætu staðið fyrir sínu hvar og hvenær sem er. Skýr hugsun og skýrar einfaldar melódíur.
Þegar sveitin lagði upp í þetta ferðalag, þessa plötu, fóru þeir í ræturnar og hlustuðu mikið á músíkina sem þeir voru að hlusta á þegar þeir stofnuðu hljómsveitina, táningar i Dublin á áttunda áratugnum; pönk og glamrokk, Ramones, Joy Divison og David Bowie.
Í Rokklandi dagsins verða öll lög plötunnar spilum og Óli Palli leiðir hlustendur í gegnum hana. Auk þess tjá ýmsir sig um U2 og plötuna. T.d Sigtryggur Baldursson sem túraði með U2 þegar hann var í Sykurmolunum árið 1992, Friðrik Ómar, Heiða Eiríks, Kiddi rokk og Jón Jónsson.
↧
↧
Þetta er ekkert nýtt, bara rokk og ról...
Hljómsveitin Sólstafir sendi í vikunni sem leið frá sér sína metnaðarfyllstu og hugsanlega bestu plötu, Óttu.
Ótta er fimmta plata Sólstafa sem hafa verið starfandi í næstum 20 ár. Sólstafir er þungarokk-hljómsveit í grunninn en tónlistin hefur breyst í gegnum árin og Sólstafir minna í dag ekki minna á Sigur Rós en Metallica, er kannski þarna mitt á milli einhverstaðar. Tónlistin er þrungin tilfinningu og dramatík. Lögin eru löng og umfjöllunarefnið er gamla góða; Sex, drugs & Rock´n roll segja þeir Addi (Aðalbjörn) söngvari og gítarleikari og trommarinn Gummi (Guðmundur Óli). Þeir tala opinskátt um hljómsveitina, listina, lífið, brennivín, Bakkus og áhrifavaldana í Rokklandi vikunnar.
Það er nóg framundan hjá Sólstöfum, sex vikna tónleikaferð um Evrópu og svo eflaust eitthvað meira í framhaldi af því.
Sólstafir spila á Rokkjötnum 2014 næsta föstudagskvöld sem Rás 2 ætlar að senda beint út frá, þungarokk-veisla í Vodafone höllinni, og svo taka Sólstafir þátt í RIFF með því að spila sína eigin tónlist undir sýningu á víkingamynd Hrafns Gunnlaugssonar, Hrafninn flýgur í Salnum í Kópavogi miðvikudaginn 1. október.
Lögin á Óttu eru átta, eins og eyktirnar sem voru helstu tímaviðmiðanir í daglegu tali áður fyrr:
lágnætti - miðnætti
ótta
rismál
dagmál
miðdegi - hádegi
nón
miður aftann - miðaftann
náttmál
Sólstafir eru:
Aðalbjörn Tryggvason - Söngur og gítar
Guðmundur Óli Pálmason - Trommur
Svavar Austmann - Bassi
Sæþór Maríus Sæþórsson- Gítar
↧
Plant & Arnalds
Gestir Rokklands að þessu sinni eru Robert Plant (Led Zeppelin) og Ólöf Arnalds.
Ólöf var að senda frá sér sína fjórðu plötu. Hún heitir Palme og er hennar mesta samstarfsverkefni til þessa segir í fréttatilkynningu. Þar segir líka að tónlistarlega bjóði platan upp á óvænta uppsprettu nýrra hugmynda og leikrænar tilraunir sem knúa hljóðheiminn áfram frá órafrænum frágangspunkti sem er ráðandi á fyrstu þremur plötunum, „Við og við“ (2007), „Innundir Skinni“ (2009) og „Sudden Elevation“ (2013).
Ólöf segir sjálf frá plötunni í þættinum.
Robert Plant var að senda frá sér 10undu sólóplötu. Hún heitir Lullaby.... And the Ceaceless Roar og hefur fengið góða dóma um allan heim. H'un hefur líka selst vel og náði t.d. 2. sæti vinsældalistanna bæði í Bretlandi og Bandaríkjunum.
Með Robert á plötunni eru menn úr ýmsum áttum. Sumir voru með honum fyrir rúmum áratug í hljómsveitinni Strange Sensation sem kom með honum hingað til Íslands 2005 á neðan aðrir eru nýjir. Þetta eru allt reyndir menn sem hafa spilað með Sinéad O´Connor. Cast, Jaw Woooble, Massive Attack, Portishead, Brian Eno ofl. Og svo er einn frá Gambíu.
↧
Hjálmar í 10 ár
Hljómsveitin Hjálmar fagnar um þessar mundir 10 ára afmæli sínu og af því tilefni efndi hljómsveitin til tónleika í Eldborg í Hörpu sem seldist upp á án allra auglýsinga, sem gerist ekki á hverjum degi.
Í tilefni af 10 ára afmælinu hefur Sena gefið út veglega tvöfalda safnplötu með mörgum af bestu lögum Hjálmanna. Platan heitir Skýjaborgin inniheldur samtals 30 lög og þar af þrjú ný.
Það var fyrir áratug að fyrsta breiðskífa Hjálma, Hljóðlega af stað, kom út. Platan vakti talsverða athygli, náði gullsölu og var valin Rokk-plata ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum auk þess sem Hjálmar voru „Bjartasta vonin“.
Hljóðversplötur Hjálmanna eru orðnar fimm talsins en auk þess hafa þeir sent frá sér safn áður-óútgefinna laga og eina plötu með finnska tónlistarmanninum Jimi Tenor, Dub of doom.
Fjórða breiðskífa Hjálma „IV“ var tekin upp árið 2009 á Jamaíka með þarlendum listamönnum. Hún sló í gegn, náði platínusölu auk þess að vera tilnefnd til fjölmargra verðlauna á Íslensku tónlistarverðlaununum. Nýjasta plata Hjálma, Órar, kom svo út haustið 2011 og sem oft áður voru Hjálmar tilnefndir til Íslensku tónlistarverðlaunanna, m.a. fyrir „plötu ársins“.
Hjálmar hafa haft hægt um sig undanfarið. Tveir af meðlimum sveitarinnar, þeir Sigurður Guðmundsson og Valdimar Kolbeinn (bassi), hafa verið búsettir erlendis, auk þess sem aðrir meðlimir hafa verið uppteknir við tónleikaferðalög með litla bróður Steina söngvara, Ásgeiri Trausta.
Hjálmarnir hafa þó endrum og eins sent frá sér lög þegar tími hefur gefist til að fara í hljóðver og má þar nefna lagið Skýjaborgin sem og lögin Lof og Tilvonandi vor sem þeir sendu frá sér nýlega.
Þeir Siggi og Kiddi sem lögðu grunninn að Hjálmum í Keflavík á sínum tíma eru gestir Rokklands að þessu sinni og segja okkur frá samstarfinu, vináttunni, hliðarverkefnunum sem Ásgeiri Trausta, Uniimog, JImi Tenor, Erlend Oye ofl.
↧
Vandamál Cohens og frelsi Gulla Briem...
Aðalgestur Rokklands að þessu sinni er Gulli Briem trommuleikari Mezzzoforte en hann var að senda frá sér plötu undir nafninu Earth Affair.
Platan sem heitir Liberté er tekin upp víðsvegar um heiminn og þar á meðal í Húsafelli hjá slagverkssmiðnum Páli. Gulli segir frá gerð plötunnar og ýmsu öðru í þættinum.
Leonard Cohen sendi frá sér plötuna Popular Problems fyrir skemmstu og Óli Palli skoðar hana aðeins og svo koma við sögu fjöldi hljómsveita og listamanna sem gerðu sín bestu verk fyrir mörgum árum og jafnvel áratugum, en eru enn að og enn að gefa út.
Rokkland býður upp á nýja músík með Pink Floyd, Bryan Ferry, Bryan Adams, Ryan Adams, AC/DC, Todmobile + Steve Hackett (Genesis) ofl.
Todmobile er um það bil að senda frá sér átundu plötu sína og þar á meðal er nýtt lag sem heitir Midnight sin og sveiin samdi með Steve Hackett gítarleikara Genesis, en hann ætlar að spila með Todmobile, sín lög og þeirra í Eldborg í janúar.
↧
↧
Mjólkurlítri fylgir hverjum hátíðarmiða
Tónlistarhátíðir eru mál málanna í Rokklandi vikunnar.
Ég ætla að tala aðeins um nokkrar af þessum frábæru sumar-hátíðum sem hafa sprottið upp um alla Evrópu á undanförnum árum og áratugum í kjölfar Woodstock. Woodstock er upphafspunktur alls og ekkert verður til úr engu.
Sagt verður frá Primavera Sound Festival sem fór fram núna um helgina í Barcelona. Haldern Pop í þýskaland er lítil skemmtileg hátíð sem Mammút, Low Roar og Kiasmos spila á núna í ágúst. Paleo Festival er svo risa hátíð í Sviss þar sem aðalnúmerin í sumar eru Sting, Robbie Williams, Robert Plant, David Guetta, Patti Smith og Kings of Leon. Roskilde Festival kemur við sögu og líka Glastonbury Festival sem var fyrst haldin árið 1970 á bújörð Eavis fjölskyldunnar í Somerset á Englandi og þá fylgdi líter af mjólk með hverjum seldum miða. VIð kynnumst aðeins þessum hátíðum gegnum talsmenn þeirra, heyrum af hugmyndafræðinni á bakvið hátíðirnar.
Einnig verur boðið upp á nýja íslenska tóna með Júníusi Meyvant, Mammút og Of Monsters And Men.
Heyrum í Future Islands á Primavera, The Replacements, Robert Plant, Patti Smith á Hróarskeldu, Fabian Tharin frá Sviss, Public Service Broadcasting frá Englandi, Metallica og Radiohead á Glastonbury, Joan baez og Led Zeppelin á tónleikum árið 1969 svo eitthað sé nefnt..
Heyrum líka upptöku með Ásgeiri Trausta af Esjunni frá síðast6a föstudegi, en hann hélt tónleika á Esjunni fyrir nokkur hundruð manns.
↧
Tom Jones og Van Leer á línunni
Gestir Rokklands að þessu sinni eru tveir og símvinir sem ég (Óli P.) ræddi við í vikunni sem leið.
Þetta eru tveir merkilegir tónlistarmenn sem báðir eru á leiðinni til Íslands til að spila. Annar kemur í fyrramálið (sunnudag) og er með tónleika í Laugardalshöll á mánudaginn (8. júní) ? enginn annar en sir Tom Jones. Hann talar í þættinum um tónlistina og líf sitt, um Guð, Janis Joplin og ýmislegt fleira. Tom Jones er stórskemmtilegur maður og frábær söngvari, risi í tónlistarsögunni, maður sem sjálfur Elvis tók sér til fyrirmyndar.
Í seinni hlutanum er það Thijs Van Leer stofnandi, „söngvari“, orgelleikari og flautuleikari Hollensku progg-rokk-sveitarinnar Focus sem spilar á Græna Hattinum á Akureyri næsta laugardag og í Bæjarbíó í Hafnarfirði á föstudaginn. Focus er merkilegt band sem hafði mikil áhrif á ungt tónlistarfólk um allan heim um og uppúr 1970, t.d. strákana sem stofnuðu Stuðmenn og Þursaflokkinn.
↧
Sumt sjóðheitt og annað gleymt
Rokkland býður upp á íslenska tóna úr ýmsum áttum í dag í tilefni af því að Ísland er bezta land í heim (að sumra mati, sumstaðar á landinu).
Í þættinum verða kynnt ný lög með hljómsveitum og listamönnum eins og Árnason & Co ásamt Bubba Morthens, Sverri Bergmann, Glowie, Bang Gang, Mugison, Júlíusi Guðmundssyni, LITH og Bootlegs svo eitthað sé nefnt.
Við heyrum svo nýjar órafmagnaðar upptökur með Of Monsters And Men sem ekki hafa heyrst áður í útvarpi á Íslandi og koma beint frá hljómsveitinni sjálfri. Plata OMAM, Beneath the skin náði í vikunni toppsæti metsölista I-Tunes sem er glæsilegur árangur. Hann er ekki síðri en landsliðsins í fótbolta á föstudaginn. Áfram Ísland!
Ég ætla að rifja upp útgáfutónleika Sigur Rósar fyrir 16 árum í Íslensku Óperunni, þegar platan Ágætis byrjun kom út, og spila brot af tónleikunum. Rás 2 sendi tónleikana út beint á sínum tíma og tók þá líka upp og geymdi upptökurnar. Núna er Birgir Jón Birgisson upptökustjóri í Sundlaugunni í Mosfellsbæ búinn að endurhljóðblanda konsertinn (sem hann sendi út beint sjálfur á sínum tíma ásamt Hirti Svararssyni) og hann er að koma út á plötu síðar á árinu í lúxus-útgáfu af Ágætis byrjun og á vinyl.
Í þættinum er líka tekið ofan fyrir Dave Grohl forsprakka Foo Fighters sem fótbrotnaði á tónleikum í Svíþjóð á föstudaginn en kláraði tónleikana þrátt fyrir það. Við rifjum upp komu Foo Fighters til Íslands í ágúst 2003 og heyrum brot frá tónleikunum sem Rás 2 hljóðritaði.
↧